Bilun í gagnagrunni

Viðgerð á gagnagrunni veldur truflunum sem stendur á virkni síðunnar.

Mastrið tekið niður til viðgerðar

11/12. Í dag var mastrið tekið niður svo endursmíði á efstu og neðstu einingu geti hafist, en þær löskuðust þegar mylluhúsið losnaði af. Það eru engin smá átök þegar 1.100 kg mótorhús missir einn spaðann og miðflóttaaflið leikur lausum hala. Gert er ráð fyrir að mastrið verði 18-20 metrar í stað 24 metra. Það er álit manna að ekki sé þörf á svo háu mastri þar sem það stendur á mjög beru svæði og er á hól. Mælingar hafa sýnt að vindhraði vex með hæð en ætlunin er að reyna að kortleggja bæði vindstyrk og sviptingar í hviðum til að aðlaga hönnun myllunnar íslenskum aðstæðum.

Undirbúningur viðgerðar kominn á fullan skrið!

9/12. Nú er undirbúningur að viðgerð og endursmíði myllunnar kominn á fullan skrið, ákveðið hefur verið að breyta hönnun á mastri og öryggisbúnaði auk fleiri hluta. Blöðin þrjú sem eru 6,5 metra löng hvert verða gerð úr trefjagleri. Gírkassinn er ónýtur og þarf að útvega nýjan, einnig verða gerðar breytingar á bremsubúnaði. Hér á síðunni verður fjallað um endursmíðina jafn óðum og allir sem vilja geta lagt inn tillögur og ráðleggingar.

Bremsa og/eða stjórntölva valda stórtjóni

Nú er rannsókn á því hvað gerðis kl 10:01 þann 29 nóvember langt komin. Í snörpum vindhviðum hafði myllan unnið eðlilega þar til um 09:35 að hún fer að snúa sér á hlið eins og forritið gefur skipun um, þá á bremsubúnaður að stöðva spaðana og myllan að snúa sér þannig að sem minnst átak sé á þá. En það sem gerist er að spaðarnir stöðvast ekki og þegar stjórnbúnaðurinn hefur snúið mylluhúsinu í 180 gráður á vindstefnu án þess að þeir hafi stöðvast verður of mikið álag á spaðana sem eru úr trefjagleri og einn spaðinn brotnar. Við það kemur mjög mikið átak á festingar og þar sem mylluhúsið er rúmt tonn að þyngd þá losnar það af legunni og fellur til jarðar.......

Alvarleg bilun varð í myllunni í dag

29/11 11:00 Alvarleg bilun varð í myllunni í dag sem gerir hana óstarfhæfa, nánari fréttir verða byrtar hér um leið og skoðun framleiðanda hefur farið fram.

Hvernig verða orkumál okkar 2020

Nýting vindorku er ein elsta aðferð manna til að ná orku úr umhverfinu. Nútíma tækni er að gera vindorku að umtalsverðum orkugjafa og stefna t.d. Danir að því að vindorka framleiði 50% af allri raforkuþörf þeirra 2020.
En vegna þess að vindorka er mjög sveiflukennd þá gengur dæmið ekki upp nema að nota aðra orkugjafa með. Ekki er hægt að geyma vind en vatn sem nýtt er til orkuframleiðslu má geyma í lónum. Því er mjög hagstætt að blanda saman vind og rennslis virkjunum til að tryggja stöðuga orku.

Myllan komin aftur af stað!

23/11 14:50 Þá er hún komin aftur í gang!

Slökkt á myllunni sem stendur!

23/11 Vindhviður náðu 21.5 m/sek fyrir hádegið og var slökkt á myllunni þar til lægir aðeins vind. Myllan fékk nýlega uppfært forrit um hvernig hún á að haga sér í miklum vindi og hefur sennilega verið still aðeins og lágt en hún er forrituð til að snúa sér undan ef vindur verður of mikill og stöðvar svo spaðana við ákveðið hámark.

Útsýnið úr mastrinu

Hanarfjall

Hér má sjá myndir teknar úr mastrinu!

Pages

Subscribe to Front page feed